Blogger

Blogger er dæmi um ókeypis þjónustu sem áhugasamir geta nýtt sér til að koma texta, myndum og myndböndum á framfæri. Margir nota síðuna á ferðalögum, til að koma skoðunum sínum um ákveðið málefni á framfæri eða einfaldlega sem dagbók.

Nauðsynlegt er að hafa aðgang að Google áður en byrjað er að nota Blogger. Ef nemendur hafa ekki þann aðgang er farið í Nýskráningu á www.google.is (sjá þær leiðbeiningar á síðunni Google Drive).

Hægt er að smella á myndirnar til að stækka þær.

1. Þegar innskráningu lýkur velur notandinn flipann Blogger sem hægt er að finna efst á síðunni. Þá er maður kominn inn í umhverfi Blogger.



2. Ef notandinn er nú þegar með bloggsíðu/-r kemur listi á forsíðu Blogger. Hægt er að búa til nýtt blogg með því að smella á viðkomandi hnapp vinstra megin.






3. Notandinn er beðinn um að gefa blogginu sínu heiti (Titill) og finna veffang handa því (Heimilisfang). Þetta veffang mun enda á léninu blogspot.com og engin önnur vefsíða undir Blogger má bera þetta sama heiti. Ef svo er fær notandinn meldingu um það frá kerfinu og þarf að finna nýtt veffang.


Hægt er að velja útlit bloggsíðunnar þarna í byjun en einnig er hægt að breyta útlitinu hvenær sem er með því að fara í Sniðmát. Eftir þetta velur notandinn hnappinn Búa til blogg!




4. Þegar notandinn hefur búið til bloggið hefur hann nokkra valmöguleika. Hann getur skrifað færslu á bloggið sitt, farið í Stillingar til að breyta ýmsu í uppsetningu eða skoðað bloggið sitt. Við skulum byrja á að skrifa færslu (henni er alltaf hægt að eyða).



5. Þegar ný bloggfærsla er skrifuð er notandinn að vinna í útliti sem er mjög líkt ritvinnslu í Word. Hægt er að setja inn myndir, myndbönd, feitletra texta og annað. Hægt er að velja hvort maður skrifi í þessu umhverfi en einnig er hægt að skrifa í HTML forritunarmáli ef notandinn þekkir það.

Mikilvægt er að muna eftir því að Birta færsluna en einnig er hægt að Vista hana og vinna meira með hana síðar (þá birtist hún ekki á netinu). Ef ýtt er á Forskoðun er hægt að sjá hvernig færslan mun birtast á netinu áður en hún er endanlega birt.



6. Hægt er að búa til undirsíður á bloggsíðunni. Þar birtast ekki bloggfærslur heldur er alltaf sami texti/mynd til staðar þangað til notandinn breytir því. Í fellilista á forsíðunni er möguleikinn Síður valinn.



7. Þær síður sem eru tengdar viðkomandi bloggsíðu koma upp í lista en hægt er að búa til nýja síðu með því að smella á hnappinn Ný síða. Þar er hægt að velja að búa til nýja, auða síðu eða tengil yfir á aðra síðu. Þegar unnið er á þessari síðu er mikilvægt að muna eftir því að Vista fyrirkomulag.


8. Þegar búið er til nýja síðu er viðmótið mjög líkt því að búa til færslu. Nauðsynlegt er að gefa síðunni heiti og hægt er að birta síðuna strax, vista hana (ekki birt á netinu) og forskoða síðuna áður en hún er birt.


9. Ef vilji er til að breyta útliti síðunnar er hægt að fara í fellistann á forsíðunni og velja Sniðmát. Þar fær notandinn að velja á milli mismunandi gerða af útliti (eða getur skrifað sinn eiginn HTML kóða fyrir útlit). Alltaf er hægt að breyta útlitinu og því um að gera að prófa sig áfram.





Engin ummæli:

Skrifa ummæli