Dropbox forritið er rafrænt ský sem getur auðveldlega komið í staðinn fyrir tölvupóstsendingar og minnislykla sem oft vilja týnast. Einnig er það þægilegur geymslustaður fyrir stærri tölvuskrár (myndir, myndbönd ofl.) sem eru of stórar til að senda með tölvupósti.
Eftirfarandi leiðbeiningar er hægt að nota til að setja upp Dropbox forritið í skólanum en einnig er hægt að nálgast það í gegnum hvaða vafra sem er, með því að fara á síðuna www.dropbox.com.
Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær í betri upplausn.
Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær í betri upplausn.
Dropbox sett upp í tölvu skólans:
1. Eftir að notandi hefur skráð sig inn á tölvuna er farið í Sækja forrit möppu sem hægt er að finna á öllum tölvum. Ef búið er að leyfa notkun forritsins hjá viðkomandi notanda ætti möguleikinn um Dropbox að birtast í listanum. Ef ekki, þá þarf að hafa samband við UTM (í gegnum starfsmann skólans) til að tengja notanda og forritið saman.
Þegar tvísmellt er á forritið í möppunni ætti að birtast gluggi sem býður notanda að hlaða niður forritinu, e. Download.
2. Þegar búið er að hlaða forritinu niður ætti að birtast gluggi sem býður notanda að keyra forritið, e. Run.
3. Það þarf að gefa tölvukerfinu smá tíma til að endurstilla sig en Dropbox forritið ætti að birtast í listanum þegar smellt er á Windows takkann (neðst í vinstra horninu)
4. Eftir að forritið er valið í fyrsta skiptið fær notandinn valmöguleika um að stofna aðgang að Dropbox eða skrá sig inn, ef aðgangur er þegar til. Notandinn er leiddur í gegnum þá skráningu/uppsetningu forritsins. Meðal annars er hægt að velja hvaða möppur notandinn ákveður að hægt sé að hafa aðgang að á þessari tilteknu tölvu.
5. Þegar forritið er uppsett í tölvunni og búið að opna það er hægt að nálgast skjölin sín með því að smella á Dropbox merkið sem má finna neðst á skjánum til hægri. Ef merkið kemur ekki upp þegar notandinn skráir sig inn á að vera hægt að finna forritið í fellilistanum með því að smella á Windows merkið.
6. Dropbox forritið er mjög hentugt til að deila skjölum og möppum með öðrum. Hægt er að opna möppur til samnýtingar með öðrum notendum Dropbox (e. Share this folder) en einnig er hægt að bjóða fólki að hlaða niður ákveðnu efni úr möppu (notandinn fær þá tengil sem hægt er að senda á aðra, e. Share link). Þetta er gert með því að hægrismella á möppuna/skjalið og velja viðkomandi skipun.
Dropbox í gegnum netvafra:
1. Ef Dropbox er ekki uppsett á tölvu er alltaf hægt að nálgast skjölin sín í gegnum vefsíðuna
www. dropbox.com (e. Sign in). Þar er einnig hægt að stofna aðgang (e. Sign up) og ná í forritið á tölvur/iPad/snjallsíma sem ekki eru í eigu skólans (e. Download Dropbox).
www. dropbox.com (e. Sign in). Þar er einnig hægt að stofna aðgang (e. Sign up) og ná í forritið á tölvur/iPad/snjallsíma sem ekki eru í eigu skólans (e. Download Dropbox).
2. Í gegnum netvafrann er hægt að gera allt (og meira til) en í gegnum forritið sem hlaðið er niður á tölvuna. Meðal annars er hægt að næla sér í viðbótar geymslupláss (e. Get free space).
3. Hægt er að deila möppum og skjölum með öðrum í gegnum Dropbox á netinu, alveg eins og hægt er að gera það í gegnum forritið sem sett er upp í einstökum tölvum. Þá er hægrismellt á viðkomandi möppu/skjal og viðeigandi skipun valin.









Engin ummæli:
Skrifa ummæli